Annað

21.11.2008
Lýsi viðheldur heibrigðri nýrnastarfsemi hjá eldra fólki

Rannsókn  finnskra  vísindamanna sýnir að hærra hlutfall ómega-3 og ómega-6
fitusýra í blóðvökva minnkar líkur á nýrnabilunum.


Niðurstöður rannsóknar sem gerð var á 931 einstaklingi 65 ára og eldri
leiddi í ljós að inntaka ómega-3 fitusýra getur hindrað öldrun nýrnanna. Í
lok rannsóknar hélst nýrnastarfsemi lengur eðlileg hjá þeim sem voru með
blóðvöka ríkan af fjölómettuðum fitusýrum.


F Lauretani et al (2008) Plasma polyunsaturated fatty acids and the decline
of renal function. Clinical Chemistry, 54, 475-481.