Heili og taugakerfi

29.10.2007
Þær ómega-3 fjölómettuðu fitusýrur, sem við fáum úr fiskmeti og lýsi, eru mikilvægar fyrir þroska heila- og taugafrumna. Til að fóstur og fylgja vaxi og þroskist eðlilega þarf að vera nægjanlegt framboð af lífsnauðsynlegu ómega-3 fitusýrunni DHA frá móðurinni.