Hugur og geð

6.1.2009
Hlutverk ómega-3 fitusýra gegn geðtruflunum

Þær ómega-3 fjölómettaðar fitusýrur sem við fáum úr fiskmeti og lýsi gegna
mikilvægu hlutverki í uppbyggingu og starfsemi heilans. Margar rannsóknir
hafa tengt fækkun þunglyndistilfella við hóflega lýsisneyslu.

Síðastliðin tíu ár hafa 12 rannsóknir verið gerðar á áhrifum ýmissa ómega-3
afurða úr fiski á þunglyndi. Í meirihluta þessara rannsókna hefur verið
sýnt fram á bata þeirra sem taka EPA rík ómega-3 þykkni eða ómega-3
fiskiolíu. Í kjölfarið hafa sprottið fram ýmsar kenningar um það hvernig
ómega-3 fitusýrunar geti bælt niður þunglyndi. Þrjár rannsóknanna sýndu að
ef sjúklingum var eingöngu gefin fitusýran DHA, varð árangurinn lítill sem
enginn.


 LA Stahl et al (2008) The role of omega-3 fatty acids in mood disorders.
Current Opinion in Investigational Drugs 9, 57-64.