Fóðurlýsi

Fóðurlýsi hefur um árabil verið vel þekkt meðal hestamanna en hin síðari árin hafa gæludýraeigendur einnig áttað sig á kostum lýsisins. Feldurinn verður áferðarfallegri og omega-3 fitusýrurnar draga úr áhrifum ýmissa kvilla, svo sem liðagigtar og exems. Það er því ekki einungis mannfólkið sem lýsið hefur góð áhrif á.