Hákarlalýsisperlur

Hákarlalýsi er talið sérstaklega nytsamlegt ónæmiskerfinu og er ríkt af alkoxyglýseróli sem örvað getur framleiðslu hvítra blóðkorna. Alkoxyglýseról fyrirfinnst í heilbrigðum beinmerg og móðurmjólk en þó ekki í því magni sem er að finna í hákarlalýsi.

Íslendingar hafa um árabil notið styrkjandi eiginleika hákarlalýsis og það er mikilvægt að huga að ónæmiskerfinu til að koma í veg fyrir að t.d. umgangspestir nái að taka sér bólfestu í líkama okkar.

Hákarlalýsi inniheldur ekki A- og D- vítamín og því geta þeir sem taka lýsi notað hákarlalýsi á sama tíma.

Innihald
Lýsi unnið úr hákarlalifur, gelatín, rakaefni (glýseról), ýruefni (sojalesitín).
Hver perla inniheldur 500 mg af hákarlalýsi, þar af ca. 80 mg alkoxyglýseról.


Ráðlagður daglegur neysluskammtur 
1-2 perlur


Næringarinnihald  1 perla  2 perlur
Orka
 21 kJ  43 kJ
Protín  0,13 g  0,26 g
Kolvetni  0,06 g   
 0,12 g
Fita  0,50 g  1,00 g
Alkoxýglýseról   80 mg  160 mg

Frekari upplýsingar: consumer@lysi.is