
Omega-3
Omega-3 fiskiolía er unnin úr fiski sem er auðugur af ómega-3 fitusýrum. Omega-3 frá LÝSI inniheldur ekki vítamín og má því taka með þorskalýsi og öðrum tegundum af lýsi.
Áhrif ómega-3 fitusýranna, einkum EPA og DHA, hafa verið ítarlega rannsökuð og niðurstöður rannsóknanna verið birtar í vísindaritum víða um heim. Enn fremur er mikið fjallað um jákvæða eiginleika þeirra í fjölmiðlum.
Því hefur meðal annars verið haldið fram að ómega-3 fiskiolía hafi jákvæð áhrif á andlega heilsu, hún dragi úr liðverkjum og morgunstirðleika. Ómega-3 fitusýrur hafa einnig góð áhrif á hjarta- og æðakerfi auk þess að gegna mikilvægu hlutverki við uppbyggingu heila og miðtaugakerfs.
Í Omega-3 eru ekki A- og D- vítamín því er óhætt fyrir þá sem taka lýsi að nota Omega-3 á sama tíma.
Innihald
|
Fiskiolía, gelatín, glýseról (E422), E-vítamín (E307), sojalesitín (E322).
Hver perla inniheldur 500 mg af omega-3 fiskiolíu.
|
| Ráðlagður daglegur neysluskammtur |
2-3 perlur fyrir börn og fullorðna 6 ára og eldri.
|
|
Innihald í 2 perlum RDS*
|
|
E-vítamín 9,4 mg 78 %
|
|
Innihald í 3 perlum
|
|
E-vítamín 14,1 mg 118 %
|
|
| Næringarinnihald |
2 perlur |
3 perlur |
EPA**
|
165 mg
|
250 mg
|
DHA**
|
105 mg
|
155 mg
|
E-vítamín
|
9,4 mg
|
14,1 mg
|
*Hlutfall af ráðlögðum dagskammti samkvæmt reglugerð um merkingu næringargildis matvæla.
**Þríglýseríð.
Frekari upplýsingar:
consumer@lysi.is