Omega 3 + D

Omega-3 fiskiolía er unnin úr fiski sem er auðugur af ómega-3 fitusýrum.

Áhrif ómega-3 fitusýranna, einkum EPA og DHA, hafa verið ítarlega rannsökuð og niðurstöður rannsóknanna birtar í vísindaritum víða um heim. Enn fremur er mikið fjallað um jákvæða eiginleika þeirra í fjölmiðlum.

Því hefur meðal annars verið haldið fram að ómega-3 fiskiolía hafi jákvæð áhrif á andlega heilsu, hún dragi úr liðverkjum og morgunstirðleika.  Ómega-3 fitusýrur hafa einnig góð áhrif á hjarta- og æðakerfi auk þess að gegna mikilvægu hlutverki við uppbyggingu heila og miðtaugakerfis.

Starfandi er hópur sérfræðinga, svokallað D-vítamínráð (e. Vitamin D Council) þar sem hvatt er til aukinnar inntöku á D-vítamíni.  Á heimasíðu ráðsins www.vitamindcouncil.org  er greint frá hversu mikilvægu hlutverki D-vítamín hefur að gegna í líkamanum, ekki eingöngu til að stuðla að beinvernd, heldur er einnig talið að D-vítamínskortur geti haft alvarlegar afleiðingar á heilsu almennt.
   
Í skammdeginu lækkar venjulega D-vítamín í blóði Íslendinga, sérstaklega hjá þeim sem ekki taka lýsi eða D-vítamínpillur.
  D-vítamín er mikilvægt fyrir vöxt tanna og beina.  Einnig er vitað að D-vítamín eykur upptöku kalks í líkamanum. Niðurstöður íslenskrar rannsóknar sem birtust í Journal of American Medical Association sýndu að það vegur þyngra fyrir kalkbúskap líkamans að fá nægjanlegt magn af D-vítamíni fremur en að auka kalkskammtinn umfram ráðlagðan dagskammt.  Niðurstöðurnar sýndu að ef D-vítamínið er af skornum skammti geta jafnvel stórir kalkskammtar ekki yfirunnið það, sem aftur getur leitt til ófullnægjandi kalkbúskapar.  Hins vegar nægir hófleg kalkneysla, þ.e. 800 mg á dag, svo fremi sem  D-vítamínið helst hátt.

Innihald
Ómega-3 fiskiolía, gelatín, rakaefni (glýseról), vatn, þráavarnarefni (náttúruleg tókóferól), D3-vítamín (kólekalsiferól).
Hver perla inniheldur 500 mg af omega-3 fiskiolíu.

Ráðlagður daglegur neysluskammtur
2 perlur fyrir  6 ára og eldri.

Innihald í 2 perlum                                   RDS*
 
  D-vítamín                     20 μg               400 %
 

Næringarinnihald  2 perlur
Samtals Omega-3 fitusýrur
335 mg
       Þar af:  EPA
160 mg
                   DHA   
100 mg
 D-vítamín 20 μg (400%)

*Hlutfall af ráðlögðum dagskammti samkvæmt reglugerð um merkingu næringargildis matvæla.
Lýðheilsustöð ráðleggur 10 μg af D-vítamíni á dag fyrir alla yngri en 61 árs og 15 μg á dag fyrir 61 árs og eldri.

Frekari upplýsingar: consumer@lysi.is