Omega-3 Forte

Omega-3 forte er þykkni sem inniheldur meira magn af fitusýrunum EPA og DHA en aðrar ómega-3 vörur frá LÝSI. Fitusýrurnar eru okkur lífsnauðsynlegar sem þýðir að líkaminn getur ekki sjálfur framleitt þær. Þess vegna er mikilvægt að fá þær úr fæðu eða fæðubótarefnum.

Víða um heim er verið að rannsaka áhrif ómega-3 fitusýranna, EPA og DHA, á ýmsa sjúkdóma, svo sem hjartasjúkdóma, geðsjúkdóma og gigtarsjúkdóma. Áhrif á ónæmiskerfið hafa einnig verið rannsökuð.

Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur komist að þeirri niðurstöðu að neysla á ómega-3 fitusýrum úr lýsi dragi úr líkum á að þeir sem hafa fengið kransæðasjúkdóm fái hann aftur. Einnig telur eftirlitið líkur á að heilbrigt fólk sem neytir ómega-3 fitusýra úr sjávarfangi eigi síður á hættu að fá kransæðasjúkdóma.

Í Omega-3 forte eru ekki A- og D- vítamín og því er óhætt fyrir þá sem taka lýsi að nota
Omega-3 forte á sama tíma.

Innihald
1000 mg omega-3 fiskiolía, gelatín, rakaefni (glýseról), vatn, þráavarnaefni (náttúruleg tókóferól), ýruefni (sojalesitín).

Ráðlagður neysluskammtur
1 perla á dag fyrir fullorðna.

Omega-3 fitusýrur
Orka 42 kJ
Prótín 0,25 g
Kolvetni 0,1 g
Fita 1,0 g
   Mettuð
0,03 g
   Einómettuð 0,14 g
   Fjölómettuð
0,84 g
   Þar af ómega-3 fitusýrur
620 mg
     EPA
310 mg
     DHA
205 mg

Frekari upplýsingar: consumer@lysi.is