
Lýsi & Liðamín Hyal-Joint®
Óþægindi eða verkir frá liðum geta dregið úr hreyfigetu og almennum gæðum daglegs lífs þeirra sem þjást af þeim. Lýsi og Liðamín Hyal-Joint
® er samansett úr efnum sem talin eru hafa jákvæð áhrif á liðina og geta viðhaldið heilbrigði þeirra.
Hyal-Joint® (hyaluronsýra)Í liðamótum er að finna seigfljótandi vökva sem nefnist liðvökvi. Hlutverk hans er að smyrja og viðhalda mýkt í liðamótum.
Hyaluronsýra er ein af meginefnum liðvökva og hana er einnig að finna í brjóski. Eitt mikilvægasta hlutverk hennar er að auka seigju liðvökvans, draga úr núningi og óþægindum og tryggja mýkt í hreyfingum liðamóta.
Kondróitínsúlfat Kondróitínsúlfat er eitt algengasta byggingarefnið í liðbrjóski. Virkni kondróitíns er talin felast í því að hemja niðurbrotshvata sem brjóta niður brjósk í liðum. Það er einnig talið hamla bólgumyndun og vinna gegn slitgigt.
Ómega-3Ómega-3 inniheldur fitusýrurnar EPA og DHA og talið er að ómega-3 geti dregið úr stirðleika á morgnana og verkjum.
Í lýsi og liðamíni Hyal-Joint
® er einnig C-vítamín sem hefur hlutverki að gegna í framleiðslu líkamans á kollageni. Kollagen er prótein sem er meginuppistaðan í ýmsum tengivefjum líkamans.
Í lýsi og liðamíni Hyal-Joint
® eru ekki A- og D-vítamín og því er óhætt fyrir þá sem taka lýsi að nota lýsi og liðamín á sama tíma.
| Innihald í ráðlögðum daglegum neysluskammti |
| Eitt lýsishylki og tvær liðamíntöflur RDS* |
|
C-vítamín 120 mg 150 %
| Innihald í einni töflu |
Hyal-Joint®
|
20 mg |
| Kondróitínsúlfat |
200 mg |
| C-vítamín |
60 mg |
|
|
Innihald í einu hylki
|
Samtals Omega-3
|
620 mg
|
EPA
|
310 mg |
DHA
|
205 mg |
*Hlutfall af ráðlögðum dagskammti samkvæmt reglugerð um merkingu næringargildis matvæla.
Frekari upplýsingar:
consumer@lysi.is