Þorskalýsisperlur

Gamla góða þorskalýsið í perluformi. Þorskalýsi styrkir vöxt tanna og beina, hefur góð áhrif á sjónina og byggir upp viðnám gegn ýmsum kvillum. Það er auðugt af ómega-3 fitusýrum og víða um heim er verið að rannsaka áhrif þeirra á ýmsa sjúkdóma, svo sem sóríasis, asma, hjarta-, geð- og gigtarsjúkdóma. Niðurstöður rannsóknanna hafa vakið mikla athygli og sýna að fitusýrurnar koma líkamanum til góða á mörgum sviðum. Þær skýra hollustu lýsisins sem löngum hefur verið kunn meðal Íslendinga.

Þorskalýsi er einnig góður D-vítamíngjafi og stöðugt fleiri álitsgjafar í næringar- og heilsufræðum benda á nauðsyn þess að neyta þorskalýsis til að tryggja nægjanlegt magn þessa mikilvæga vítamíns, ekki síst til að viðhalda beinþéttni.


Innihald 
Þorskalýsi, gelatín, rakaefni (glýseról), A-vítamín (retínól palmítat), D-vítamín (kólekalsiferól), ýruefni (sojalesitín).
Í hverri perlu eru 280 mg af þorskalýsi.

Innihald í ráðlögðum daglegum neysluskammti

4-6 perlur fyrir fullorðna og börn eldri en þriggja ára.


Innihald í 1 perlu                                     RDS*
   A-vítamín                         110 µg            14 %  
   D-vítamín                         1,5 µg             30 %
Innihald í 6 perlum                                  RDS*
   A-vítamín                         660 µg             83 %  
   D-vítamín                         9 µg               180 %  

Næringarinnihald 1 perla
6 perlur
    Omega-3 fitusýrur**
68 mg
411 mg
       EPA**
22 mg
131 mg
       DHA**
29 mg
175 mg
A- vítamín
110 µg
660 µg
D-vítamín
1,5 µg
9 µg

*Ráðlagður dagskammtur samkvæmt reglugerð um merkingu næringargildis matvæla.
**Þríglýseríð.
Lýðheilsustöð ráðleggur 10 µg af D-vítamíni á dag fyrir alla yngri en 61 árs.  Fyrir 61 árs og eldri ráðleggur Lýðheilsustöð 15 µg.

Frekari upplýsingar: consumer@lysi.is