Spurt og svarað


?
Dregur hitun í vinnslu úr næringarlegum eiginleikum lýsis?
Það er rétt að lýsi er hitað við vinnslu. En flestir jákvæðir eiginleikar þess haldast og aðrir bætast við.

Öll umræða um að fersk og ómeðhöndluð matavara sé best, er í flestum tilfellum góðra gjalda verð og á oft við rök að styðjast, en síður þó þegar lýsi á í hlut.

Ef við vildum neyta ómeðhöndlaðs lýsis,  þyrftum við einnig að sætta okkur við mikla ókosti eins og grútarbragð, remmu, mjög takmarkað geymsluþol og ýmis aðskotaefni.   Hreinsunarferli lýsis miðar sérstaklega að því að lágmarka lykt og bragð, fjarlægja óæskileg efni og tryggja gott geymsluþol.

Mikilvægustu efnin í lýsi eru ómega-3 fitusýrurnar EPA og DHA og D vítamínin.

EPA og DHA fitusýrurnar eru okkur lífsnauðsynlegar þar sem líkaminn getur ekki framleitt þær.  Þær eru t.d. mikilvægt byggingarefni í heila, miðtaugakerfi og augum.  Marg sannað er með rannsóknum að þær geta dregið úr líkum á ýmsum sjúkdómum eins og d.t. hjarta- og æðasjúkdómum og ýmsum geðrænum kvillum.
 
Helsta hættan við að hita lýsi er sú að það þráni/oxist þegar súrefni binst við það og að ómega-3 fitusýrurnar skemmist af þeim sökum. Til að varna því að það gerist fer hitun fram undir lofttæmi sem tryggir að súrefni kemst ekki í snertingu við lýsið. Lýsi hf. sannreynir með stöðugum mælingum í vinnslunni að EPA og DHA eru til staðar í lýsinu í sama magni og fyrir vinnslu.  Lofttæmið hefur einnig þann kost að ýmis óæskileg efni eimast úr lýsinu.

D vítamín myndast í húð okkar þegar sól skín á hana og getur því verið af skornum skammti í skammdeginu.  D-vítamín er ekki auðfengið í náttúrunni, en fiskur og þorskalýsi eru mikilvægustu uppsprettur þess.

D vítamín brotnar að hluta til niður í vinnslunni.  Því er D vítamíni með nákvæmelga sömu virkni bætt í lýsið eftir vinnslu til að tryggja að ætíð sé sama magn af því í vörunni.

Það er marg sannað með rannsóknum að það lýsi sem við neytum í dag hefur jákvæð áhrif og er mikilvægt fyrir okkur þrátt fyrir alla vinnslu.

?
Hver er munurinn á mettuðum og ómettuðum fitusýrum?
Fitusýrum er gjarnan skipt í þrjá hópa, mettaðar, einómettaðar og fjölómettaðar fitusýrur. Ómettaðar fitusýrur kallast svo vegna þess að þær hafa eitt eða fleiri hvarfgjörn efnatengi sem kallast tvíbindingar. Einómettaðar fitusýrur hafa einn tvíbinding en fjölómettaðar fitusýrur hafa tvo eða fleiri tvíbindinga. Mettaðar fitusýrur hafa ekki þessa tvíbindinga.

Mannslíkaminn getur sjálfur myndað mettaðar og einómettaðar fitusýrur en ákveðnar fjölómettaðar fitusýrur þurfum við úr fæði. Þær eru lífsnauðsynlegar og skiptast í tvo flokka, ómega-3 og ómega-6 fitusýrur.
?
Hvaða vítamín eru í þorskalýsi?
Það er alkunna að þorskalýsi er góður vítamíngjafi og inniheldur mikið af A- og D-vítamíni. D-vítamínið er D3-vítamín eða kólikalsiferól. Við lýsisvinnslu tapast hluti vítamínanna og er því nauðsynlegt að bæta þeim aftur út í þegar lýsið er staðlað. Að auki er algengt að bæta við E-vítamíni en þorskalýsi inniheldur lítið af því vítamíni. Við stöðlunina eru notuð sams konar vítamín og finnast í náttúrunni.
?
Þarf að geyma lýsi í kæli?
Lýsi má geyma við stofuhita þar til flaskan hefur verið opnuð.  Eftir það er best að geyma hana í kæli.
?
Hvers vegna myndast botnfall í lýsi?
Lýsi er fljótandi við herbergishita en við geymslu við lágt hitastig eins og í kæli má búast við því að hluti fitunnar storkni og falli til botns. Eingöngu er um útlitsgalla að ræða því botnfallið hefur engin áhrif á eiginleika lýsisins. Til þess að bræða lýsið sem storknar dugar að láta það standa smá stund við herbergishita. Til þess að draga úr botnfallsmyndun við lágt hitastig er lýsi kaldhreinsað.
?
Er lýsi kaldpressað?
Stundum er ruglað saman vinnslu á lýsi og vinnslu á kaldpressaðri ólífuolíu. Ólífur má kreista í sérstökum pressum en það er ekki hægt að kreista lýsi úr þorskalifur eða síld. Við framleiðslu á lýsi er alltaf beitt hitun því öðru vísi er ekki hægt að losa um fituna í fiskholdinu.
?
Hvað er kaldhreinsun?
Einn þáttur í lýsisvinnslu kallast kaldhreinsun en þá er lýsið kælt niður þar til fitukristallar falla út. Kristallarnir eru svo síaðir frá með dúkum. Tilgangur kaldhreinsunnar er að minnka botnfall sem myndast við geymslu í kæli.
?
Hvernig á að ná lýsisblettum úr fötum?
A. Mislit föt; föt sem þola ekki suðu.
Efnið er gegnbleytt í hreinsuðu bensíni. Kartöflumjöli er stráð yfir blettinn til þess að draga upp bensínið og fituna. Hugsanlega má nota aseton í staðinn fyrir bensín.  Þá má benda á blettahreinsinn frá Undra sem hefur reynst vel gegn alls konar fitublettum, þ.m.t. lýsi.

B. Föt sem þola suðu.
Hrein sápa, helst grænsápa eða sólskinssápa er makað á blettinn og látið liggja á. Því næst eru fötin þvegin við suðu.

C. Til þess að fjarlægja lykt, t.d. lýsislykt er gott að nota salmíakspíritus.