Þorskalifrin í 70 krónur
Eftirspurn eftir þorskalýsi er mikil og nú vantar meiri lifur. Til að bregðast við þessu hefur Lýsi ákveðið að hækka verðið á lifur úr 50 í 70 krónur kílóið.
Við tökum á móti allri lifur úr þorski, ufsa og ýsu hvarvetna á landinu og má blanda þessum tegundum saman.
Þá útvegum við sérstök lifrarkör, en einnig má nota fiskmarkaðskör sem í eru settir stórir plastpokar. Lifrin er sett í pokann, fyllt allt að 80% og lokað tryggilega fyrir. Áríðandi er að dagmerkja hvern poka.
Sigurður Garðarsson gefur nánari upplýsingar og er alltaf hægt að ná í hann í síma 897 8279.
E-mail:
lifur@lysi.is