Að leiðarljósi

LÝSI hefur það að meginmarkmiði að vera áfram framúrskarandi og traustur framleiðandi vara sem bæta heilsu og auka lífsgæði. Þegar um er að ræða LÝSI eða svokallaða fiskiolíu er fyrirtækið sannarlega leiðandi á sviði rannsókna, vöruþróunar, framleiðslu og sölu.

LÝSI leggur mikla áherslu á gæði vörunnar bæði með öflugu gæðaeftirliti og gæðakerfi. Þá ber hin nýja og fullkomna verksmiðja LÝSIs, sem tekin var í notkun árið 2005, þess merki að áherslan er öll á framleiðslu úrvalsvöru. Verksmiðjan er ein sú fullkomnasta í víðri veröld og gerir hún fyrirtækinu kleift að framleiða miklu betri vörur en áður þekktust.

LÝSI er ljóst mikilvægi heilbrigðrar og styrkrar stjórnunar á auðlindum hafsins. Fyrirtækið byggir framleiðslu sína á hráefni hafsins úr fiskistofnum sem nýttir eru á sjálfbæran og ábyrgan hátt og stjórnað með virku fiskveiðistjórnunarkerfi.

Áratugum saman hefur LÝSI byggt upp traust sambönd við kaupendur sína sem og birgja. Slík sambönd eru hornsteinar góðs árangurs. Með aðstoð gæðastaðla vinnur fyrirtækið náið með hráefnabirgjum sínum með það að leiðarljósi að tryggja kaupendum og notendum öruggar og heilsusamlegar afurðir.

LÝSI býr að öflugri liðsheild starfsmanna sem leggja grunninn að því að öllum framleiðslu-, hreinlætis- og gæðastöðlum sé fullnægt. Fyrirtækið leggur metnað sinn í að starfsfólki líði vel og skapar því öruggt og vinsamlegt vinnuumhverfi þar sem áhersla er lögð á endurmenntun og þjálfun starfsfólks.