Sögulegir áfangar
Bræðurnir Tryggvi og Þórður Ólafssynir stofnuðu LÝSI árið 1938. Það var þörfin fyrir A og D vítamín sem varð til þess að fyrirtækið var stofnað. Á árunum 1938-1950 var stór hluti framleiðslunnar seldur Up-John Ltd. og A og D vítamín voru unnin úr lýsinu. Framleiðsla á kaldhreinsuðu meðalalýsi í neytendapakkningum hófst ekki fyrr en 1959. Allar götur síðan hefur heimamarkaðurinn gegnt mikilvægu hlutverki; nýjar vörur hafa verið þróaðar fyrir hann og reynslan síðar flutt yfir á nýja markaði. Lítum aðeins nánar á sögu LÝSIS.
1998-2007
Síðustu árin hafa að mörgu leyti markað tímamót í sögu fyrirtækisins. Salan hefur vaxið hratt og rannsóknir og þróun nýrra vara verið öflugri en nokkru sinni áður. Fyrirtækið fór í gegnum vottunarferli og öðlaðist bæði ISO 9001 og ISO 22000 vottun. Árið 2005 var ný verksmiðja tekin í notkun, búin fullkomnustu tækjum sem völ er á til framleiðslu lýsis. Nýjasta viðbótin er tæki til framleiðslu á lýsisþykkni. Árið 2007 fékk verksmiðjan lyfjaframleiðsluleyfi frá Lyfjaeftirliti ríkisins. Sölu- og markaðsstarf LÝSIS hefur borið góðan ávöxt sem meðal annars sýnir sig í því að árið 2007 fékk LÝSI Útflutningsverðlaun forseta Íslands.
1978-97
Árið 1979 birtist vísindagrein eftir Dyerberg og Bang þar sem greint var frá því að neysla lýsis dragi úr líkum á hjarta- og æðasjúkdómum. Greinin hafði mikil áhrif á allan almenning og þorskalýsið öðlaðist nýtt líf ef svo má að orði komast. LÝSI lagði á þessum árum síaukna áherslu á rannsókna- og þróunarstarf með þeim árangri að fyrirtækið er nú leiðandi þekkingarfyrirtæki hvað varðar omega-3 og notkun þess. LÝSI fékk HACCP vottun gæðakerfa sinna á grundvelli ISO 9002 og GMP (lyfjaframleiðslu) leyfi fyrir pökkunarhluta verksmiðjunnar og varð fyrsta fyrirtæki sinnar tegundar sem öðlaðist slíkt leyfi.
1958-77
Markaður fyrir þorskalýsi var áfram erfiður. Læknar höfðu komist að því að með því að auka hlut fjölómettaðra fitusýra í mataræðinu mætti hafa áhrif til lækkunar á kólesteróli. Þeir ráðlögðu því neyslu á jurtaolíum í stað fiskiolíu eða lýsis. Á þessum árum hófst framleiðsla á kaldhreinsuðu þorskalýsi í neytendapakkningum. Um 1960 var rannsóknastofu komið á laggirnar og reglubundnar rannsóknir á þorskalýsi hófust. Æ síðan hefur heimamarkaðurinn gegnt mikilvægu hlutverki þar sem nýjar vörur hafa verið þróaðar og reynslan síðan flutt yfir á nýja markaði.
1938-57
Þörfin á A og D vítamínum skapaði eftirspurnina eftir þorskalýsi en vítamínin hafa jákvæð áhrif á náttblindu og beinþynningu. LÝSI varð fljótlega stærsti framleiðandi þorskalýsis á Íslandi. Mest af framleiðslunni var flutt út til Bandaríkjanna en á tímum heimsstyrjaldarinnar síðari sömdu ríkisstjórnir Íslands og Bretlands um að síðarnefnda landið fengi að kaupa helming framleiðslunnar á meðan á stríðinu stæði. Um 1950 dró verulega úr eftirspurn eftir þorskalýsi og verðið féll. Árin 1950 og allar götur til 1980 voru að mörgu leyti erfið lýsisiðnaðinum í heiminum. Þrátt fyrir þessar erfiðu aðstæður skilaði LÝSI samt hagnaði á tímabilinu.
Stofnun
Lýsisævintýrið hófst með skeyti frá E.C. Wise hjá Up-John fyrirtækinu í Michigan í Bandaríkjunum árið 1936. Skeytið var stílað á Tryggva Ólafsson og í því var spurt hvort hann gæti útvegað þorskalýsi. Bandaríska fyrirtækið hafði keypt þorskalýsi sitt frá Noregi en skyndilega hafði það gerst að hlutfall A og D vítamína í lýsinu hrapaði. Fyrirtækið þurfti því að koma sér upp öðrum birgi og pantaði 800 tonn af þorskalýsi. Tryggvi átti enga verksmiðju en hann átti lóð og úr varð að hann hélt ásamt eiginkonu sinni til Noregs árið 1937 til að velja og panta tæki í nýja verksmiðju. Tækin komu og lokið var við að reisa verksmiðjuna í lok ársins og tók hún formlega til starfa 10. janúar 1938.