Eldri Fréttir
14.1.2011
Einn elsti drykkur Íslendinga á óhemju marga aðdáendur og nú fjölgar í
vinahópnum.
14.1.2011
„Fái börn lýsi reglulega virðist það draga úr líkum á fæðuofnæmi,“ segir Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, sérfræðingur í barnalækningum. „Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hvað lýsið er hollt.“
25.11.2010
LÝSI var einn fimm aðila sem tilnefndir voru til Fjöreggsins í ár
9.11.2010
Jákvæð áhrif ómega-3 fitusýranna, einkum EPA og DHA, eru vel þekkt og niðurstöður rannsókna birst í vísindaritum víða um heim. Ný afurð frá LÝSI byggir á þessum eiginleikum, en til viðbótar hefur D-vítamíni verið bætt við. D-vítamín leikur mikilvægt hlutverk við kalkbúskapinn í skammdeginu á Íslandi.
2.11.2010
Omega-3 tyggiperlur innihalda Omega-3 fiskiolíu auk D-vítamíns.
Perlurnar eru með góðu ávaxtabragði og henta börnum sérlega vel en
einnig þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að nota
fljótandi lýsi eða kyngja perlum.
13.9.2010
Tvær lausnir sameinaðar í eina losa íbúa Þorlákshafnar við lyktina frá þurrkverksmiðju Lýsis.
6.4.2010
Rannsóknastofan hjá LÝSI kemur vel út í alþjóðlegum samanburðarmælingum.
1.3.2010
Um miðjan desember síðastliðinn vottaði BSI (British Standards Institute) að gæðakerfi LÝSIS uppfylli kröfur BRC staðalsins.
3.2.2010
Fyrir nokkru hófst hjá Lýsi framleiðsla á lýsisþykkni með mjög háu hlutfalli DHA fitusýra.
28.1.2009
Í tilefni 70 ára afmælis LÝSIS var ráðist í útgáfu bókar um sögu félagsins og kom hún út í lok 2008.
28.1.2009
Lýsi hlaut nýverið forvarnarverðlaunin Varðbergið frá TM, en verðlaunin hlýtur árlega sá viðskiptavinur sem þykir skara fram úr á sviði forvarna gegn óhöppum og slysum.
4.11.2008
Lýsi er nú að hefja framleiðslu á ómega-3 þykkni í verksmiðju sinni að Fiskislóð í Reykjavík. Með tilkomu nýju framleiðslulínunnar eykst vöruframboð verulega og kemur fyrirtækið þannig betur til móts við þarfir viðskiptavina sinna og neytenda.
11.9.2008
Í starfi sínu hefur LÝSI að leiðarljósi að bæta heilsu og auka lífgæði fólks. Það á við um nýja vöru sem fyrirtækið setti á markað í upphafi ársins, Æskubrunninn. Viðtökur hafa verið frábærar.
6.5.2008
LÝSI fagnaði 70 ára afmæli sínu nú fyrir skömmu, en fyrsta verksmiðja fyrirtækisins tók formlega til starfa 10. janúar 1938 og voru stofnendur bræðurnir Tryggvi og Þórður Ólafssynir.
4.2.2008
Æskubrunnur er ætlaður þeim sem vilja viðhalda almennu heilbrigði á efri árum.
Æskubrunnur inniheldur þekkta samsetningu á fæðurbótarefnunum Asetýl- L- karnitín og alfalípóiksýru ásamt túnfisklýsisperlu.
11.12.2007
Nýjar vörur leysa Liðamín af hólmi. Þær eru Magna Liðamín Hyal-Joint® annars vegar og Lýsi & Liðamín Hyal-Joint® hinsvegar.
30.11.2007
Í dag tekur LÝSI hf. í notkun nýjan vef. Nýi vefurinn er aðgengilegur og á honum má finna ýmsar upplýsingar um fyrirtækið, starfsemi þess, sögu og vörur.
20.11.2007
Inntaka 15 g af DHA og EPA fitusýra kann að hafa valdið því að námamaðurinn Randal McCloy náði sér fyrr eftir alvarlegt námaslys en hann lifði einn af sprengingu í kolanámu í janúar 2006.
5.6.2007
Í gær gekk LÝSI HF. frá kaupum á 53% hlut í fyrirtækinu IFEX ehf. en fyrir átti LÝSI 47% eignarhlut. IFEX hefur sérhæft sig í framleiðslu fóðurs fyrir hunda og ketti. Um 95% framleiðslunnar hafa verið flutt úr landi til Bandaríkjanna, Evrópu og Asíu.
20.4.2007
LÝSI hf hlaut Útflutningsverðlaun forseta Íslands og afhenti forseti Íslands herra Ólafur Ragnar Grímsson verðlaunin á Bessastöðum við hátíðlega athöfn í dag.
1.3.2007
Omega-3 fiskiolía er úr fisktegundum sem innihalda hátt hlutfall ómega-3 fitusýra. Hún er bragðminni en venjulegt lýsi og með fersku sítrónubragði. Hún inniheldur ekki vítamín og má því taka með lýsi til þess að bæta við inntöku á lífsnauðsynlegum fitusýrum.
28.2.2007
Sportþrennan hentar þeim sem vilja styrkja sig til árangurs og auka getu í íþróttum og líkamsrækt. Hún er einnig góð fyrir þá sem vilja auka fitubrennslu líkamans.
14.1.2011
LÝSI á Fésbók
Einn elsti drykkur Íslendinga á óhemju marga aðdáendur og nú fjölgar í
vinahópnum.
Einn elsti drykkur Íslendinga á óhemju marga aðdáendur og nú fjölgar í
vinahópnum.
Til að gera samskiptin við umheiminn skemmtilegri og upplýsingastreymið
auðveldara er LÝSI komið með eigin síðu á Fésbók. Þar má nálgast nytsamar
upplýsingar um vöruna, taka þátt í léttum leikjum og lesa um skemmtilegar
hliðar lýsistöku. Eins og einkennandi er fyrir Fésbók verða vinirnir
væntanlega duglegir að láta í sér heyra.
Slóðin er
http://www.facebook.com/home.php?#!/LysiHf
14.1.2011
Lýsi virðist sporna við fæðuofnæmi í börnum
„Fái börn lýsi reglulega virðist það draga úr líkum á fæðuofnæmi,“ segir Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, sérfræðingur í barnalækningum. „Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hvað lýsið er hollt.“
„Fái börn lýsi reglulega virðist það draga úr líkum á fæðuofnæmi,“ segir Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, sérfræðingur í barnalækningum. „Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hvað lýsið er hollt.“
Fiskiofnæmi er þriðja algengasta fæðuofnæmið í ungbörnum hérlendis á eftir eggja- og
mjólkurofnæmi. Lýsi virðist sporna við fæðuofnæmi.
Í nýjasta hefti Læknablaðsins voru niðurstöður hluta alþjóðlegrar rannsóknar á fæðuofnæmi barna frá fæðingu til tveggja og hálfs árs aldurs kynntar. Ísland er fulltrúi norðursins en auk okkar taka átta aðrar Evrópu þjóðir þátt í rannsókninni sem er hluti af EuroPrevall-verkefninu. „Niðurstöðurnar sem birtast nú taka til tólf mánaða aldurs, en ekki er búið að vinna úr öllum gögnum svo ekki er um heildarniðurstöður að ræða heldur fæðuofnæmi í íslenskum börnum á fyrsta aldursári,“ segir Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, sérfræðingur í barnalækningum, ofnæmis og ónæmislækningum, og einn af aðstandendum rannsóknarinnar hérlendis.
Verðandi foreldrum var boðið að taka þátt í rannsókninni. Kysu þeir að gera svo svöruðu þeir spurningalista og komu með börnin í skoðun ef grunur lá á fæðuofnæmi. „Ofnæmispróf og svokallað tvíblint þolpróf leiddu í ljós að 1,86 prósent þeirra barna sem tóku þátt í rannsókninni voru með sannanlegt fæðuofnæmi,“ segir Sigurveig. Á næstu mánuðum verða birtar niðurstöður sem sýna samanburð á milli þjóðanna en þó liggur fyrir að helstu ofnæmisvakar hér á landi eru þeir sömu og í öðrum löndum. Egg og mjólk eru í flestum tilvikum ofnæmisvaldar, en athygli vekur að á Íslandi kemur fiskur í þriðja sæti. „Það er erfitt að draga ályktanir áður en búið er að taka saman og vinna úr öllum gögnum og heildarniðurstöður rannsóknarinnar liggja fyrir, en það er athyglisvert að fiskiofnæmi greinist hér í börnum undir eins árs aldri,“ segir Sigurveig. Lýsi, sem við Íslendingar höfum löngum talið allra meina bót, fær í rannsókninni enn eina fjöður í hattinn. „Fái börn lýsi reglulega virðist það draga úr líkum á fæðuofnæmi,“ segir Sigurveig. „Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hvað lýsið er hollt.“
Heimild: tryggvi@frettabladid.is. Fréttblaðið - Heilsa og Hreyfing, 8.01.2011, síða 4
25.11.2010
LÝSI tilnefnt til Fjöreggs MNÍ
LÝSI var einn fimm aðila sem tilnefndir voru til Fjöreggsins í ár
LÝSI var einn fimm aðila sem tilnefndir voru til Fjöreggsins í ár
Verðlaunin voru veitt á degi Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands sem var haldinn í 18. sinn þann 27. október.
Í þetta sinn var það Ólafur Reykdal, matvælafræðingur hjá Matís sem hlaut Fjöreggið sem veitt er fyrir lofsvert framtak á matvæla- og næringarsviði. Hann hlaut það fyrir rannsóknir sem stutt hafa við nýsköpun og frumkvöðlastarf við ræktun, vinnslu og framleiðslu á afurðum úr byggi.
LÝSI var einn fimm aðila sem dómnefnd tilnefndi og var það fyrir að vaxa og dafna á grundvelli stöðugrar vöru- og markaðsþróunar. LÝSI óskar Ólafi til hamingju með verðlaunin.
13.9.2010
Einstæð lausn á lyktarvanda
Tvær lausnir sameinaðar í eina losa íbúa Þorlákshafnar við lyktina frá þurrkverksmiðju Lýsis.
Tvær lausnir sameinaðar í eina losa íbúa Þorlákshafnar við lyktina frá þurrkverksmiðju Lýsis.
Landsmenn muna margir eftir deilum um lyktarmengun frá þurrkverksmiðju Lýsis í Þorlákshöfn en Lýsi rekur aðra tveggja þurrkverksmiðja í bænum. Fyrirtækið og bæjaryfirvöld voru langt í frá sammála um lausn á málinu. Nú hefur verið settur upp einstakur búnaður sem miklar vonir eru bundnar við.
Lýsi hafði um nokkurt skeið reynt að nota óson til lykteyðingar með því að dæla því inn í þurrkklefa, en fyrirtækið hefur yfir að ráða stærsta ósonkerfi landsins. Reyndist lausnin ekki fullnægjandi. Á hinn bóginn var vel þekkt sú aðferð að nota kæli- og þvottaturna við hreinsun á reyk. Kjartan Ólafsson, verksmiðjustjóri hjá Lýsi í Þorlákshöfn, fékk þá snilldarhugmynd að sameina þetta tvennt og kæla útblástur verksmiðjunnar með ósonblönduðu vatni. Hugmyndin var svo útfærð nánar, og mannvirkið hannað og smíðað af Héðni.
Allt loft frá verksmiðjunni er leitt inn í stokk þar sem óson blandast við það. Síðan berst ósonblandað loftið inn í 2 þvottaturna sem hvor um sig er 9 metra hár og 3 metrar í þvermál. Þegar loftið leitar upp eftir turnunum úðast ósonblandað vatn úr 48 stútum yfir loftið og þvær það og kælir. Efst í hvorum turni er eins metra þykkur massi af kúlugrindum sem óhreinindin setjast á og sem vatnsdroparnir frá úðurunum skola niður.

Byrjunin lofar góðu en verkinu lauk í maí þegar teknir voru í gagnið blásarar til að búa til undirþrýsting í sjálfu verksmiðjuhúsinu. Kjartan segir að frá því að búnaðurinn var settur upp hafi engin kvörtun borist og svo virðist sem almenn ánægja sé með framtakið af hálfu bæjarbúa. Það er ekki auðvelt að mæla lykt, en þess er vænst að í nokkurri fjarlægð frá verksmiðjunni muni milli 90 og 100 % lyktarinnar hverfa, en þétt við verksmiðjuna verði einhver lykt eins og við allar fiskvinnslur landsins.
6.4.2010
Rannsóknastofa LÝSIS í alþjóðlegum samanburði
Rannsóknastofan hjá LÝSI kemur vel út í alþjóðlegum samanburðarmælingum.
Rannsóknastofan hjá LÝSI kemur vel út í alþjóðlegum samanburðarmælingum.
LÝSI rekur sína eigin rannsóknastofu þar sem framkvæmdar eru margvíslegar efnamælingar á framleiðsluvörum fyrirtækisins. Af þessum mælingum má nefna vítamínmælingar, fitusýrugreiningar og fleiri sérhæfðar fitumælingar.
Rannsóknastofan tekur reglulega þátt í alþjóðlegum prófunum þar sem mælingar stofunnar eru bornar saman við mælingar erlendra rannsóknastofa á sama sviði. Markmiðið er að fá óháð mat á gæðum efnamælinga sem er hjálplegt við endurbætur og lagfæringar á efnagreiningum rannsóknastofunnar. Um árabil hefur rannsóknastofan tekið þátt í samanburðarmælingum sem skipulagðar eru af Samtökum fitu- og olíuefnafræðinga í Bandaríkjunum (AOCS). Útkoman hefur jafnan verið jákvæð. Árið 2009 lenti rannsóknastofan þannig í öðru til þriðja sæti af fjölmörgum rannsóknastofum sem tóku þátt í ýmsum efnagreiningum á lýsi.
1.3.2010
LÝSI fær vottun samkvæmt BRC (British Retail Consortium) staðlinum
Um miðjan desember síðastliðinn vottaði BSI (British Standards Institute) að gæðakerfi LÝSIS uppfylli kröfur BRC staðalsins.
Um miðjan desember síðastliðinn vottaði BSI (British Standards Institute) að gæðakerfi LÝSIS uppfylli kröfur BRC staðalsins.
Stærstu verslanakeðjur í Englandi gera yfirleitt þá kröfu til birgja að þeir séu vottaðir samkvæmt BRC staðlinum (BRC Global Standard for Food Safety). Vottun er því mikilvæg til þess að geta haslað sér völl á þessum markaði en í Englandi er lýsisneysla mjög almenn. Nú þegar er hafin framleiðsla á lýsi fyrir þennan markað.
Þetta er nýjasta viðbótin við gæðakerfi fyrirtækisins en fyrir er vottun skv. ISO 9001 auk þess sem fyrirtækið hefur vottun Lyfjastofnunar um að framleiðsluferlar, bæði í verksmiðju og pökkun uppfylli GMP kröfur. Þetta er mikilvægt þar sem margir erlendir kaupendur eru lyfjafyrirtæki og nota lýsi til lyfjagerðar eða selja afurðirnar sem lyf.
3.2.2010
Ný gerð af lýsisþykkni
Fyrir nokkru hófst hjá Lýsi framleiðsla á lýsisþykkni með mjög háu hlutfalli DHA fitusýra.
Fyrir nokkru hófst hjá Lýsi framleiðsla á lýsisþykkni með mjög háu hlutfalli DHA fitusýra.
Undir lok árs 2008 hófst framleiðsla á lýsisþykkni í verksmiðju Lýsis við Fiskislóð. Fyrsta afurðin var þykkni af gerðinni 33/22 en nafnið vísar til þess að hlutfall EPA fitusýrunnar er ≥33% og hlutfall DHA ≥22%. Í þykkninu eru fleiri ómega-3 fitusýrur en EPA og DHA og er heildarhlutfall ómega-3 fitusýra 65%. Það er nærri tvöfalt hærra hlutfall en er í lýsinu sem þykknið er unnið úr. Í því er hlutfall EPA 18%, hlutfall DHA 12% og heildarhlutfall ómega-3 fitusýra um 35%. Ómega-3 33/22 þykkni er selt í hylkjum undir nafninu Omega forte auk þess sem þykknið er flutt út sem magnvara til erlendra framleiðenda.
Á síðasta ári hófst framleiðsla á nýrri tegund af lýsisþykkni. Um er að ræða þykkni af gerðinni 5/50. Í því er hlutfall EPA ≥5% en hlutfall DHA er mjög hátt eða ≥50%. Heildarhlutfall allra ómega-3 fitusýra í 5/50 þykkninu er einnig um 65%.
EPA og DHA fitusýrur eru manninum lífsnauðsynlegar. Rannsóknir hafa lengst af beinst að jákvæðum áhrifum EPA á hjarta- og æðasjúkdóma, einnig á liðabólgur og gigt. Í kjölfar þessara rannsókna hefur eftirspurn eftir EPA aukist verulega. Síðustu árin hefur athyglin beinst í auknum mæli að DHA og jákvæðra áhrifa þess á meðgöngu, fóstur, þroska heila- og taugakerfis og ýmsa geðræna sjúkdóma.
Nýja 5/50 þykknið verður fyrst um sinn flutt út sem magnvara en í skoðun er að setja það á markað innanlands og þá í hylkjum eins og Omega forte.
28.1.2009
Saga LÝSIS gefin út
Í tilefni 70 ára afmælis LÝSIS var ráðist í útgáfu bókar um sögu félagsins og kom hún út í lok 2008.
Í tilefni 70 ára afmælis LÝSIS var ráðist í útgáfu bókar um sögu félagsins og kom hún út í lok 2008.
Bókin hlaut heitið Gull hafsins og er þar bæði vísað til hins verðmæta efnis sem unnið er úr sjávarfangi sem og til litarins á lýsinu. Helga Guðrún Johnson og Sigurveig Jónsdóttir tóku saman efni bókarinnar.
Í bókinni er stiklað á stóru um þýðingu lýsisins fyrir Íslendinga á öldum áður, en lýsi var ein mikilvægasta verslunarvara þjóðarinnar um langt skeið. Í bókinni er farið yfir sögu fyrirtækisins og sagt frá því hvernig rannsóknir leiddu menn smám saman í allan sannleika um hollustu lýsisins. Það skiptust á skin og skúrir bæði á mörkuðunum og í rekstrinum, en á endanum stóð uppi öflugt og nútímalegt fyrirtæki, sem byggir afkomu sína að verulegu leyti á útflutningi á margvíslegum lýsisafurðum.
Bókin var aðeins prentuð í litlu upplagi en henni var dreift á allmörg bókasöfn.
28.1.2009
LÝSI fær verðlaun fyrir forvarnir gegn slysum
Lýsi hlaut nýverið forvarnarverðlaunin Varðbergið frá TM, en verðlaunin hlýtur árlega sá viðskiptavinur sem þykir skara fram úr á sviði forvarna gegn óhöppum og slysum.
Lýsi hlaut nýverið forvarnarverðlaunin Varðbergið frá TM, en verðlaunin hlýtur árlega sá viðskiptavinur sem þykir skara fram úr á sviði forvarna gegn óhöppum og slysum.
Lýsi býr að öflugri liðsheild starfsmanna sem tryggir að öllum gæðastöðlum sé fullnægt. Fyrirtækið fór á sínum tíma í gegnum vottunarferli og öðlaðist ISO 9001 vottun og síðar leyfi til lyfjaframleiðslu. Árið 2005 var ný verksmiðja tekin í notkun, búin fullkomnustu tækjum sem völ er á til framleiðslu lýsis. Öflugt gæðakerfi, sem byggir á nákvæmu eftirliti og vel búinni rannsóknarstofu , leggur grunninn að framleiðslu vara í hæsta gæðaflokki.
Katrín Pétursdóttir, forstjóri sagði í tilefni viðurkenningarinnar:
"Við hjá Lýsi hf. leggjum mikla áherslu á forvarnarstarf og gæði. Fyrirbyggjandi viðhald, öflugt öryggiskerfi og ekki síst öflugt brunavarnakerfi. Að undanförnu höfum við unnið sérstaklega að því að fækka óhöppum sem tengjast bílaflotanum og árangurinn hefur verið ótrúlega góður. Okkur þykir mjög vænt um þessa viðurkenningu frá TM. Hún er okkur mikil hvatning."
4.11.2008
Ný þykknisverksmiðja
Lýsi er nú að hefja framleiðslu á ómega-3 þykkni í verksmiðju sinni að Fiskislóð í Reykjavík. Með tilkomu nýju framleiðslulínunnar eykst vöruframboð verulega og kemur fyrirtækið þannig betur til móts við þarfir viðskiptavina sinna og neytenda.
Gríðarleg aukning hefur orðið í sölu lýsisafurða undanfarin ár. Með ört stækkandi neytendahópi, ekki síst af yngri kynslóðinni, koma nýjar áherslur við inntöku á lýsi. Með þróun hátæknibúnaðar til vinnslu á ómega-3 þykknum getur fyrirtækið nú boðið hentuga lausn við inntöku á ómega-3 fitusýrum.
Ómega-3 þykkni er framleitt úr ómega-3 fiskiolíu. Við vinnsluna er hlutfall ómega-3 fitusýra nær tvöfaldað með því að fjarlægja aðrar fitusýrur úr fiskiolíunni. Ómega-3 þykkni inniheldur yfir 65% af ómega-3 fitusýrum en til samanburðar er ómega-3 fiskiolía með um 35%. Ávinningurinn fyrir neytendur er sá að helmingi minna þarf að taka af þykkninu en af fiskiolíunni. Ómega-3 þykknið verður eingöngu selt í hylkjum til neytenda.
Undirbúningur hefur staðið yfir í tæp tvö ár en framleiðslulínan var hönnuð af starfsmönnum Lýsis og Héðins.
11.9.2008
Æskubrunnur: viðtökur vonum framar
Í starfi sínu hefur LÝSI að leiðarljósi að bæta heilsu og auka lífgæði fólks. Það á við um nýja vöru sem fyrirtækið setti á markað í upphafi ársins, Æskubrunninn. Viðtökur hafa verið frábærar.
Í starfi sínu hefur LÝSI að leiðarljósi að bæta heilsu og auka lífgæði fólks. Það á við um nýja vöru sem fyrirtækið setti á markað í upphafi ársins, Æskubrunninn. Viðtökur hafa verið frábærar.
Þróun í fjögur ár
Eftir þróunarvinnu í fjögur ár þar sem farið var yfir rannsóknir á ýmsum efnum sem hjálpa líkamanum í daglegu amstri varð til endanlega varan. Hún er sérstaklega hönnuð með fólk 50 ára og eldra í huga, en vegna þess mikla álags sem nútíma þjóðfélag og lifnaðarhættir krefjast af okkur, hentar varan einnig yngra fólki sem vill huga að heilsu sinni. Hún er sett saman með það í huga að auka daglega vellíðan ásamt því að stuðla að góðu minni.
Innihald
Æskubrunnur inniheldur lýsisperlu auk asetýlkarnitíns og alfalípóiksýru. Jákvæðir eiginleikar omega-3 fitusýra eru vel þekktir. Lýsið sem valið var inniheldur hátt hlutfall af fitusýrunni DHA. Rannsóknir hafa sýnt að í heila okkar er að finna umtalsvert magn af DHA enda er oft talað um fisk sem heilafæði.
Til viðbótar lýsinu urðu svo asetýlkarnitín og alfalípóiksýra fyrir valinu en margar rannsóknir hafa beinst að áhrifum þessara efna á efnaskipti og hrörnun fruma líkamans. Asetýlkarnitín auðveldar flutning orkuefna í frumum líkamans og alfalípóiksýra er öflugt andoxunarefni sem verndar frumurnar fyrir skemmdum. Niðurstöður benda til að efnin geti unnið gegn minnistapi sem oft fylgir hækkandi aldri og hafi að auki jákvæð áhrif á hjarta- og æðakerfi.
Góðar viðtökur – stefnt á útflutning
Það var greinilegt að landsmenn kunnu vel að meta þessa nýju vöru og fékk hún frábærar viðtökur. Frá því í janúar og fram til þessa dags má segja að neyslan jafngildi því að hver einasti íbúi landsins hafi tekið dagskammt af Æskubrunni. Okkur finnst greinilega mikilvægt að viðhalda heilbrigði frumanna og góðu minni ásamt því að tryggja næga orku í dagsins önn. Með hliðsjón af árangrinum hér heima stefnir LÝSI á útflutning Æskubrunnsins.
6.5.2008
LÝSI í 70 ár
LÝSI fagnaði 70 ára afmæli sínu nú fyrir skömmu, en fyrsta verksmiðja fyrirtækisins tók formlega til starfa 10. janúar 1938 og voru stofnendur bræðurnir Tryggvi og Þórður Ólafssynir.
LÝSI fagnaði 70 ára afmæli sínu nú fyrir skömmu, en fyrsta verksmiðja fyrirtækisins tók formlega til starfa 10. janúar 1938 og voru stofnendur bræðurnir Tryggvi og Þórður Ólafssynir.
Þetta var í lok kreppuáranna á Íslandi og framundan var Heimsstyrjöldin síðari. Erfiðleikarnir sem fylgdu kreppunni urðu til þess að þó nokkur ný fyrirtæki voru stofnuð hér á landi. Í tilfelli LÝSIS varð hrap á innihaldi A og D vítamína í lýsi frá Noregi þess valdandi að bandarískt fyrirtæki þurfti að koma sér upp öðrum birgi. Það sendi Tryggva erindi og endaði með að panta umtalsvert magn af þorskalýsi. Hængurinn var sá að Tryggvi átti enga verksmiðju en hann átti lóð og úr varð að hann hélt til Noregs til að velja og panta tæki í nýja verksmiðju. Tækin komu og lokið var við að reisa verksmiðjuna í lok ársins og tók hún formlega til starfa 10. janúar 1938.
Það er langur vegur hvort heldur mælt er í árum eða tækni frá fyrstu verksmiðjunni og til nýju verksmiðjunnar sem tekin var í notkun árið 2005. Sú er búin fullkomnustu tækjum sem völ er á til framleiðslu lýsis og árið 2007 fékk verksmiðjan lyfjaframleiðsluleyfi frá Lyfjaeftirliti ríkisins. Sölu- og markaðsstarf LÝSIS hér á landi en ekki síður erlendis hefur verið öflugt, en mest af framleiðslunni er flutt út. Árið 2007 fékk LÝSI Útflutningsverðlaun forseta Íslands.
Þetta var í lok kreppuáranna á Íslandi og framundan var Heimsstyrjöldin síðari. Erfiðleikarnir sem fylgdu kreppunni urðu til þess að þó nokkur ný fyrirtæki voru stofnuð hér á landi. Í tilfelli LÝSIS varð hrap á innihaldi A og D vítamína í lýsi frá Noregi þess valdandi að bandarískt fyrirtæki þurfti að koma sér upp öðrum birgi. Það sendi Tryggva erindi og endaði með að panta umtalsvert magn af þorskalýsi. Hængurinn var sá að Tryggvi átti enga verksmiðju en hann átti lóð og úr varð að hann hélt til Noregs til að velja og panta tæki í nýja verksmiðju. Tækin komu og lokið var við að reisa verksmiðjuna í lok ársins og tók hún formlega til starfa 10. janúar 1938.
30.11.2007
Nýr lýsandi vefur um LÝSI og lýsi
Í dag tekur LÝSI hf. í notkun nýjan vef. Nýi vefurinn er aðgengilegur og á honum má finna ýmsar upplýsingar um fyrirtækið, starfsemi þess, sögu og vörur.
Í dag tekur LÝSI hf. í notkun nýjan vef. Nýi vefurinn er aðgengilegur og á honum má finna ýmsar upplýsingar um fyrirtækið, starfsemi þess, sögu og vörur. Að auki eru þar fróðlegar greinar um rannsóknir á heilnæmi lýsisins og gagnsemi þess við ýmsum kvillum og sjúkdómum. Til að mynda eru nefnd dæmi um virkni lýsis á heila og taugakerfi, hjarta og æðakerfi, meðgöngu, ónæmiskerfi og áhrif á þunglyndi svo nokkuð sé nefnt. Þá má á vefnum nálgast örstutt
myndband frá nýrri verksmiðju LÝSIS hf. sem hóf starfsemi 2005 og er ein sú fullkomnasta sinnar tegundar í heiminum. IGM sá um hönnun og uppsetningu síðunnar.
20.11.2007
Ómega-3 kemur stórslösuðum námumanni til bjargar
Inntaka 15 g af DHA og EPA fitusýra kann að hafa valdið því að námamaðurinn Randal McCloy náði sér fyrr eftir alvarlegt námaslys en hann lifði einn af sprengingu í kolanámu í janúar 2006.
Inntaka 15 g af DHA og EPA fitusýra kann að hafa valdið því að
námamaðurinn Randal McCloy náði sér fyrr eftir alvarlegt námaslys en
hann lifði einn af sprengingu í kolanámu í janúar 2006.
Dagblaðið Daily Mail í Charleston í Virginíu í Bandaríkjunum hefur eftir Julian Bailes, forseta taugaskurðlækningadeildar West Virginia University, að inntöku 15 g af DHA og EPA fitusýra kunni að mega þakka það að námamaðurinn Randal McCloy náði sér fyrr eftir alvarlegt námaslys. McCloy, sem var 28 ára, lifði einn af sprengingu í kolanámu í janúar 2006.
McCloy fékk hjartaáfall, nýru og lifur hættu að starfa og líkaminn hafði ofþornað þegar hann var borinn út úr námunni. Nær engin starfsemi mældist í heilanum. McCloy var lagður inn á Allegheny General Hospital í Pitsburgh þar sem Dr. Bailes hóf að gefa honum daglegan skammt af lýsi í gegn um slöngu. Hugmyndin var að endurbyggja heilann frá grunni eins og um fóstur væri að ræða.
Dr. Bailes: „Ég vil ekki segja að þetta hafi skipt sköpum en ég held að áhrifin hafi verið mikil í læknisfræðilegum skilningi.“
(Inform, 2007 18 (9), 615)
5.6.2007
LÝSI eignast IFEX sem framleiðir fóður fyrir gæludýr
Í gær gekk LÝSI HF. frá kaupum á 53% hlut í fyrirtækinu IFEX ehf. en fyrir átti LÝSI 47% eignarhlut. IFEX hefur sérhæft sig í framleiðslu fóðurs fyrir hunda og ketti. Um 95% framleiðslunnar hafa verið flutt úr landi til Bandaríkjanna, Evrópu og Asíu.
Í gær gekk LÝSI HF. frá kaupum á 53% hlut í fyrirtækinu IFEX ehf. en fyrir átti LÝSI 47% eignarhlut. IFEX hefur sérhæft sig í framleiðslu fóðurs fyrir hunda og ketti. Um 95% framleiðslunnar hafa verið flutt úr landi til Bandaríkjanna, Evrópu og Asíu.
IFEX er fyrirtæki sem frá árinu 2001 hefur sérhæft sig í framleiðslu fóðurs fyrir hunda og ketti. Hjá fyrirtækinu starfa 10 manns. Það hefur lagt metnað sinn í að framleiða eingöngu hágæðavöru unna úr íslensku hráefni. IFEX rekur verksmiðju í Þorlákshöfn sem liggur vel að helstu fiskimiðum okkar. Ennfremur hefur fyrirtækið framleitt Harðbita og Snakkbita til manneldis. Um 95% framleiðslunnar hafa verið flutt úr landi til Bandaríkjanna, Evrópu og Asíu.
Vörurnar hafa hlotið góðar móttökur erlendis enda ekki mörg fyrirtæki sem framleiða hunda- og kattamat úr hreinum íslenskum fiski án allra aukaefna.
Lýsi er þekkt fyrir framleiðslu sína á einstökum hollustuvörum svo sem þorskalýsi og Omega 3 vörum sem framleiddar eru í fullkomnustu verksmiðju sinnar tegundar í heiminum. Var hún tekin í notkun árið 2005. En Lýsi framleiðir einnig fóðurmjöl og fóðurlýsi og sér aukin tækifæri með kaupunum. Katrín Pétursdóttir:” Við sjáum fyrir okkur margs konar samlegðaráhrif í þróun, framleiðslu og sölu vara beggja fyrirtækjanna. Unnt er að auka verulega framleiðslu gæludýrafóðurs og Lýsi hefur þekkinguna á því hvernig nota má bætiefni til að ná fram enn meiri hollustu í fæði dýranna. Það fer vel á að Lýsi stuðli að því að hundar, kettir og önnur dýr eigi einnig greiðan aðgang að hollustufæði, ekki síður en mannfólkið. Bæði fyrirtækin eru með starfstöðvar í Þorlákshöfn sem auðveldar öll samskipti”.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Pétursdóttir í síma 899 5551
20.4.2007
LÝSI hlýtur útflutningsverðlaun forseta Íslands
LÝSI hf hlaut Útflutningsverðlaun forseta Íslands og afhenti forseti Íslands herra Ólafur Ragnar Grímsson verðlaunin á Bessastöðum við hátíðlega athöfn í dag.

LÝSI hf hlaut Útflutningsverðlaun forseta Íslands og afhenti forseti Íslands herra Ólafur Ragnar Grímsson verðlaunin á Bessastöðum við hátíðlega athöfn í dag. Þetta er í nítjánda sinn sem verðlaunin voru afhent en þau eru veitt í samráði og samvinnu við Útflutningsráð Íslands. Katrín Pétursdóttir forstjóri LÝSIS veitti verðlaununum viðtöku.
Valur Valsson, formaður úthlutunarnefndar, sagði meðal annars í ávarpi sínu í tilefni verðlaunaveitingarinnar: „LÝSI hf. fær verðlaunin fyrir þann einstaka árangur sem fyrirtækið hefur náð í sölu- og markaðsmálum á afurðum úr lýsi og fyrir þá framsýni sem fyrirtækið hefur sýnt í vöruþróun og eflingu þekkingar og færni á sínu sviði. Fyrirtækið er góður fulltrúi fyrir þann vaxandi fjölda íslenskra fyrirtækja sem haslar sér nú völl á alþjóðlegum neytendamarkaði með vörur og þjónustu er tengjast heilsueflingu og heilbrigðum lífsháttum."
Verðlaunagripurinn í ár er gerður af Leifi Breiðfjörð myndlistarmanni en merki Útflutningsverðlaunanna er eins og áður hannað af Hilmari Sigurðssyni.
Listaverkið eftir Leif heitir Kjarni og er unnið í silfurmósaík, spegil og gler. Um verk sitt segir listamaðurinn m.a.: „Hvert fyrirtæki á sér kjarna þekkingar og hugvits sem það byggir alla sína starfsemi og framleiðslu á."