LÝSI er auðvitað þekktast fyrir gamla, góða þorskalýsið en nú á dögum framleiðir fyrirtækið fjölmargar aðrar tegundir af fæðubótarefnum. Tegundir lýsis eru fleiri en áður og það er einnig mun bragðminna, eða bætt með bragðefnum fyrir þá sem það kjósa.
Inniheldur fjölómettuðu ómega-3 fitusýrurnar EPA og DHA sem eru okkur lífsnauðsynlegar. Það inniheldur einnig A-, D- og E-vítamín. D-vítamín gegnir mikilvægu hlutverki við verndun beina.
Auk afurða unnum úr fiskiolíu hefur LÝSI einnig verið leiðandi í þróun og markaðssetningu á fæðubótarefnum og vítamínum. Heilsutvennan hefur verið vinsælasta varan í þeim vöruflokki í áraraðir.
Munurinn á hefðbundnu þorskalýsi sem flestir vísa til sem Lýsis og öðrum fiskiolíum er magn fjölómettuðu fitusýranna EPA og DHA, magn vítamína og vítamíntegunda. Sem dæmi þá uppfyllir þorskalýsi ráðlagðan dagskammt af D-vítamíni á meðan omega-3 olían inniheldur ekkert D-vítamín, báðar vörurnar innihalda þó hátt hlutfall af EPA og DHA fitusýrum.
Skoðaðu töfluna til að finna út hvaða vörur er í lagi að taka saman og finndu hina fullkomnu samsetningu fyrir þig.
Frekari upplýsingar á consumer@lysi.is