Krakka Omega-3

Krakka Omega-3 eru tyggjanlegar perlur sem innihalda Omega-3 fiskiolíu auk D-vítamíns.

Perlurnar eru með góðu ávaxtabragði og henta börnum sérlega vel en einnig þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að nota fljótandi lýsi eða kyngja perlum.

Gerðar hafa verið fjölmargar rannsóknir á áhrifum Omega-3 fitusýra, einkum EPA og DHA, sem birst hafa í vísindaritum víða um heim og jafnframt er fjallað um jákvæða eiginleika þeirra í fjölmiðlum með reglulegu millibili.

Omega-3 fitusýrur hafa mikilvægu hlutverki að gegna við uppbyggingu heila og miðtaugakerfis og eru taldar hafa jákvæð áhrif á sjón.


Vissir þú að starfandi er hópur sérfræðinga, svokallað D-vítamínráð (e. Vitamin D Council) þar sem hvatt er til aukinnar inntöku á D-vítamíni? Á heimasíðu ráðsins www.vitamindcouncil.com er greint frá hversu mikilvægu hlutverki D-vítamín hefur að gegna í líkamanum, ekki eingöngu til að stuðla að beinvernd, heldur er einnig talið að D-vítamínskortur geti haft alvarlegar afleiðingar á heilsu almennt.

D-vítamín er ekki að finna í mörgum fæðutegundum og því þarf að huga sérstaklega að inntöku þess.

Hver Omega-3 tyggiperla inniheldur 5 µg (100% RDS*) af D-vítamíni.

Frekari upplýsingar: consumer@lysi.is

Næringarupplýsingar

Ráðlagður daglegur neysluskammtur

4 ára og eldri 2 perlur RDS
D-vítamín 10 µg 200%

Innihald:
Omega-3 fiskiolía, rakaefni (glýseról), gelatín (nautgripa), vatn, sætuefni (xylitol), ávaxtabragðefni, ýruefni (sellulósaduft), þráavarnarefni (náttúruleg tókóferól), D-vítamín (kólekalsiferól).
Hver perla inniheldur 600 mg af fiskiolíu.
Inniheldur sætuefni.

Næringargildi

  2 perlur
Samtals Omega-3 fitusýrur 400 mg
EPA 190 mg
DHA 120 mg
D-vítamín 10 µg (200% NV*)

*Hlutfall af næringarviðmiðunargildi fyrir fullorðna samkvæmt reglugerð.
Embætti landlæknis ráðleggur 10 µg af D-vítamíni á dag fyrir börn yngri en 10 ára, 15 µg fyrir 10-70 ára og 20 µg fyrir 71 árs og eldri.