Óbragðbætt og bragðbætt með sítrónu eða sítrónu og myntu.
Hrein hollusta með háu hlutfalli af fjölómettuðum fitusýrum og auðug af A- og D- og E-vítamínum.
Þorskalýsi inniheldur A- og D-vítamín sem styrkja vöxt tanna og beina, hafa góð áhrif á sjónina og styðja við ónæmiskerfi líkamans. Það er einnig auðugt af ómega-3 fitusýrum sem eru þau næringarefni sem hvað mest hafa verið rannsökuð á síðustu áratugum. Niðurstöðurnar sýna að ómega-3 fitusýrurnar gegna margþættu hlutverki í líkamanum. Þær ásamt vítamínunum skýra hollustu þorskalýsisins sem löngum hefur verið kunn meðal Íslendinga.
Þorskalýsi er góður D-vítamíngjafi en stöðugt fleiri álitsgjafar í næringar- og heilsufræðum benda á nauðsyn þess að neyta nægjanlegs magns D-vítamíns, ekki síst fyrir beinin.
Þorskalýsi er framleitt úr íslenskri lifur sem safnað er frá bátum og skipum um land allt.
Frekari upplýsingar: consumer@lysi.is
Innihald í ráðlögðum neysluskammti |
||
Börn 1-5 ára | 1 teskeið (5 ml) á dag | NV* |
---|---|---|
A-vítamín | 230 µg | 29% |
D-vítamín | 10 µg | 200% |
E-vítamín | 4,6 mg | 38% |
6 ára og eldri | 2 teskeiðar (10 ml) á dag | NV* |
A-vítamín | 460 µg | 58% |
D-vítamín | 20 µg | 400% |
E-vítamín | 9,2 mg | 77% |
Innihald: *Hlutfall af næringarviðmiðunargildi fyrir fullorðna samkvæmt reglugerð. |
Næringargildi í 10 ml |
|
10 ml | |
Orka | 340 kJ/81 kkal |
Fita | 9,2 g |
Mettuð fita | 1,6 g |
Einómettuð fita | 4,6 g |
Fjölómettuð fita | 3,0 g |
Þar af Omega-3 fitusýrur | 2160 mg |
EPA | 690 mg |
DHA | 920 mg |
A-vítamín | 460 µg |
D-vítamín | 20 µg |
E-vítamín | 9,2 mg |