Kerfisbundin gæðastjórnun er nauðsynlegur þáttur í starfsemi LÝSIS, enda skipta gæðin höfuðmáli við framleiðslu heilsuvara.
Með það að leiðarljósi hefur fyrirtækið sett sér eftirfarandi markmið:
Til að fylgja þessu eftir hefur fyrirtækið sett á fót viðurkennt gæðastjórnunarkerfi samkvæmt alþjóðlegum staðli FSSC 22000.
LÝSI er með GMP vottun og er skráð á lista Lyfjastofnunar Evrópu sem framleiðandi á virkum lyfjaefnum (API).
Stjórnendur LÝSIS leggja áherslu á að fyrirtækið sé bæði leiðandi á sviði rannsókna og þróunar annars vegar, og sölu og markaðssetningar hins vegar, og ná með því að tvinna saman þessa lykilþætti í rekstri fyrirtækisins.
Góð staða LÝSIS byggir ekki síst á öflugu rannsóknarstarfi síðustu áratuga, ásamt samvinnu við lyfjaframleiðslufyrirtæki og rannsóknastofnanir víða um heim. Þá hefur LÝSI í langan tíma unnið með Háskóla Íslands og Matís.