Fréttir

Börn með D-vítamínskort

19.02.2011

Dæmi er um að íslensk börn þjáist af svo alvarlegum D-vítamínskorti að þau séu komin með beinkröm.  Miklar líkur eru á því að þeir sem taka ekki lýsi yfir vetrarmánuðina þjáist af D-vítamínskorti. 

Líkami okkar fær D-vítamín á tvennan hátt, það er með sólarljósi og í gegnum D-vítamínríka fæðu.  Það segir sig sjálft að á myrkum vetrarmánuðum á Íslandi gegnir fæðan mjög ríku hlutverki í þessu samhengi.  Öldum saman reyndu Íslendingar að þreyja þorrann með því að snæða feitan fisk og með því að taka inn fiskafurðina lýsi.  Þetta gerðu þeir til að reyna að tryggja sig gegn beinkröm, sem hér var lengi landlægur sjúkdómur og stafar af D-vítamínskorti, sem getur meðal annars valdið afmyndun í beinum.  Þessi vandi hvarf þó nær alveg eftir að skólar byrjuðu að gefa börnum lýsi.  En nú hafa margir leikskólar og skólar hætt að gefa börnum lýsi í sparnaðarskyni og sumir foreldrar virðast ekki átta sig á því hve mikil hætta er á því  að fólk fái D-vítamínskort yfir vetrarmánuðina og börnum er enn hættara við því en fullorðnum.  Michael Clausen, barna- og ofnæmislæknir, segir að mjög nýleg dæmi séu um að börn þjáist af miklum D-vítamínskorti og jafnvel séu þau komin með beinkröm.                                              
                                                                                                                                                  
Michael Clausen, barna- og ofnæmislæknir: Og það er merkilegt að lýsi er ekkert voðalega gott á bragðið og það er ekki voðalega mikil næring, maður verður ekki saddur af því að taka lýsi og það getur meira að segja bara verið hættulegt að taka of mikið lýsi.  En hins vegar hafa Íslendingar tekið lýsi í, í þúsund ár að minnsta kosti og það er ekki af tilefnislausu.  Í lýsi er D-vítamín sem er okkur lífsnauðsynlegt og hérna, við fáum ekki nægt D-vítamín hér á Íslandi og ja, sólinni, þannig að við erum með D-vítamínskort yfir allan veturinn ef við tökum ekki lýsi.  En svo eru það omega-3 fitusýrurnar sem eru náttúrlega mikilvægar fyrir okkar geðprýði og vellíðan sem við fáum úr lýsinu.                                                 
                                                                                                                                                  
Hann segir að lýsisneysla sé einkar mikilvæg nú þar sem einnig hafi dregið mjög úr fisksneyslu.  En á sama tíma hefur sólarljósið á Íslandi ekki aukist mjög yfir vetrarmánuðina.                                                                                                                    
                                                                                                                                                                                                                                                                     
Heimild: Stöð 2 17.02.2011, Karen Kjartansdóttir     

Aftur í fréttayfirlit