Meðgangan og barnið

NEYSLA DHA Á MEÐGÖNGU STUÐLAR AÐ ÞROSKA HEILA HJÁ FÓSTRI

20.11.2007

Fiskmeti er algengasta uppspretta Omega-3 fitusýra sem eru mikilvægur þáttur í þroska heila og taugakerfis. Barnshafandi konur, sem borða 340 g eða meira af fiskmeti á viku, auka líkurnar á að eignast greindari og félagslega þroskaðri börn

“Avon Longitudinal Study of Parents and Children” var notuð til að rannsaka neyslu fiskmetis hjá 11.875 barnshafandi konum í Bretlandi. Greindarvísitala ásamt hegðunar- og félagsþroska var metin hjá börnum þeirra frá 6 mánaða til 8 ára aldurs. Niðurstöðurnar sýna að 12% kvennanna borðuðu ekki fiskmeti, 65% borðuðu 1-340 g/viku og 23% neyttu að minnsta kosti 340 g/viku.

Í Bandaríkjunum er þunguðum konum ráðlagt að takmarka neyslu á fiskmeti við 340 g á viku. Þessi rannsókn sýnir aftur á móti að börn mæðra, sem borðuðu minna en 340 g af ómega-3 ríku fiskmeti, voru líklegri til að hafa lakari heila- og taugaþroska en börn mæðra sem borðuðu meira fiskmeti á meðgöngunni.

J R Hibbeln o.fl. (2007) Maternal seafood consumption in pregnancy and neurodevelopmental outcomes in childhood (ALSPAC study): an observational cohort study. The Lancet, 369, 578-585.

Til baka