Lýsi hefur framleitt lausn með 2% af fríum fitusýrum blandaðar í omega-3 fiskiolíu.
Fríar fitusýrur (e. free fatty acids) eru m.a. unnar úr fiskiolíum og hafa þær verið mikið rannsakaðar á Íslandi og í Bandaríkjunum. Niðurstöður þessara rannsókna gefa til kynna að fríar fitusýrur eyðileggja hjúpaðar veirur auk ýmissa baktería. Þegar veirur komast í öndunarfæri berast þær um munn eða nef og taka sér síðan bólstað í slímhúð koksins.
Omega-3 fiskiolía er framleidd úr fiskitegundum sem eru auðugar af Omega-3 fitusýrum.
Omega-3 fitusýrurnar EPA og DHA stuðla að eðlilegri starfsemi hjartans. Til þess að ná fram þeim áhrifum þarf að neyta samtals
250 mg á dag. DHA stuðlar að auki að eðlilegri sjón og heilastarfsemi. Til að áhrifin skili sér þarf að neyta 250 mg af DHA á dag.
Leiðbeiningar um notkun:
Varan er ekki lyf og þar með ekki meðferð eða lækning við sjúkdómum.
Frekari upplýsingar: consumer@lysi.is
Ráðlagður daglegur neysluskammtur |
||
5 ml 2-4 sinnum á dag skolist um slímhúð koks og munns sem lengst | ||
---|---|---|
Innihald: |
per 20 ml | ||
---|---|---|
Orka | 685 kJ / 165 kcal | |
Próteín | 0 g | |
Kolvetni | 0 g | |
Fita | 18,6 g | |
Mettuð fita | 4,9 g | |
Einómettuð fita | 4,8 g | |
Fjölómettuð fita | 8,9 g | |
Þar af Omega-3 fitusýrur: | ||
EPA | 2975 mg | |
DHA | 1950 mg | |
* % af næringarviðmiðunargildi fyrir fullorðna samkvæmt reglugerð.