Þorskalýsi

Hrein hollusta með háu hlutfalli af fjölómettuðum fitusýrum og auðug af A- og D- og E-vítamínum. Þorskalýsi fæst óbragðbætt og bragðbætt með sítrónu eða sítrónu og mintu.

Þorskalýsi inniheldur A- og D-vítamín sem styrkja vöxt tanna og beina, hafa góð áhrif á sjónina og styðja við ónæmiskerfi líkamans. Það er einnig auðugt af ómega-3 fitusýrum sem eru þau næringarefni sem hvað mest hafa verið rannsökuð á síðustu áratugum. 

Niðurstöðurnar sýna að ómega-3 fitusýrurnar gegna margþættu hlutverki í líkamanum. Þær ásamt vítamínunum skýra hollustu þorskalýsisins sem löngum hefur verið kunn meðal Íslendinga.

Þorskalýsi er góður D-vítamíngjafi en stöðugt fleiri álitsgjafar í næringar- og heilsufræðum benda á nauðsyn þess að neyta nægjanlegs magns D-vítamíns, ekki síst fyrir beinin.

Þorskalýsi er framleitt úr íslenskri lifur sem safnað er frá bátum og skipum um land allt.

Þorskalýsisperlur

Meira

Krakkalýsi

Meira

Þorskalýsi í flöskum

Meira