Verkir í liðum geta dregið úr hreyfigetu og lífsgæðum þeirra sem þjást af þeim. Omega 3 liðamín Hyal-Joint® er samsett úr efnum sem talin eru hafa jákvæð áhrif á liðina og geta viðhaldið heilbrigði þeirra.
Hyaluronsýra er ein af meginefnum liðvökva og má einnig að finna í brjóski. Hlutverk hennar er að auka seigju liðvökvans, draga úr núningi og tryggja mýkt í hreyfingum liðamóta.
Kondróitínsúlfat er eitt byggingarefnanna í liðbrjóski. Virkni kondróitíns er talin felast í að hemja hvata sem brjóta niður brjósk. Það er einnig talið hamla bólgumyndun og vinna gegn slitgigt.
Omega 3 liðamín Hyal-Joint® er einnig C-vítamín sem aðstoðar líkamann við að framleiða kollagen, sem er meginuppistaðan í ýmsum tengivefjum líkamans.
Omega-3 inniheldur fitusýrurnar EPA og DHA og er talið geta dregið úr stirðleika og verkjum.