Starfsemin
Frá upphafi hefur starfsemi LÝSIS byggst á framleiðslu þorskalýsis. Fyrirtækið hefur fylgt þróuninni í mjög langan tíma, nær alveg frá því að lýsi var notað á lampa fram til þess tíma er augu manna beindust að innihaldi A og D vítamína í lýsi og síðar þegar heilsugildi omega-3 fitusýra var uppgötvað.
Áhersla á rannsóknir og þróun
Í áratugi hefur LÝSI staðið fyrir og átt frumkvæði að viðamiklum rannsóknum á hinum ýmsu eiginleikum afurðanna og hráefnisins. Þannig var LÝSI eina fyrirtækið sinnar tegundar sem rannsakaði reglulega hvort óæskileg aukaefni fyndust í fisklifur. Þá er fyrirtækið leiðandi í rannsóknum á omega-3 og er í þeim efnum í samvinnu við marga rannsóknaaðila víða um heim.
Allt snýst um gæðin
Til að tryggja að afurðirnar séu eins góðar og mögulegt er leggur LÝSI ofurkapp á rannsóknastarfið. Öflug gæðakerfi, sem njóta bæði stuðnings gæðaeftirlits og rannsóknastofu nýju verksmiðjunnar, leggja grunninn að framleiðslu vara í hæsta gæðaflokki. Árið 2007 öðlaðist LÝSI GMP leyfi frá Lyfjaeftirliti ríkisins til að framleiða lyf.
Aðalverksmiðja og höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Reykjavík en þess utan er LÝSI með lifrarbræðslu, hausaþurrkun og framleiðslu á gæludýrafóðri í Þorlákshöfn.
Nokkrar helstu afurðir LÝSIS eru þorskalýsi, omega-3 lýsi, laxalýsi, túnfisklýsi, hákarlalýsi, loðnulýsi, skvalen og ýmsar mjöltegundir.