Hákarlalýsisperlur

Hákarlalýsi er talið sérstaklega nytsamlegt ónæmiskerfinu og er ríkt af alkoxyglýseróli sem örvað getur framleiðslu hvítra blóðkorna. Alkoxyglýseról fyrirfinnst í heilbrigðum beinmerg og móðurmjólk en þó ekki í því magni sem er að finna í hákarlalýsi.

Íslendingar hafa um árabil notið styrkjandi eiginleika hákarlalýsis og það er til dæmiss mikilvægt að huga að ónæmiskerfinu til að koma í veg fyrir að umgangspestir nái að taka sér bólfestu í líkama okkar.

Hákarlalýsi inniheldur ekki A- og D- vítamín og því geta þeir sem taka lýsi notað hákarlalýsi á sama tíma.

Frekari upplýsingar: consumer@lysi.is

Næringarupplýsingar

Ráðlagður neysluskammtur

Fullorðnir: 1-2 perlur á dag

Innihald:
Hákarlalýsi, gelatín (nautgripa), rakaefni (glýseról), vatn.

Hver perla inniheldur 500 mg af hákarlalýsi, þar af eru ca 100 mg alkoxyglýseról.

Næringarinnihald

  1 perla 2 perlur
Alkoxyglýseról 100 mg 200 mg