Nú vantar meiri lifur

Markviss markaðsstarfsemi Lýsis hf. í mörg ár hefur gert það að verkum að aukin eftirspurn er eftir þorskalýsi úti um allan heim. Því vantar okkur meiri lifur.

Við tökum á móti allri lifur úr þorski, ufsa og ýsu og má blanda þessum tegundum saman. Verðið er 50 krónur fyrir kg og tekið er á móti lifur hvarvetna á landinu.

Þá útvegum við sérstök lifrarkör, en einnig má nota fiskmarkaðskör sem í eru settir stórir plastpokar. Lifrin er sett í pokann, fyllt allt að 80% og lokað tryggilega fyrir. Áríðandi er að dagmerkja hvern poka.

Sigurður Garðarsson gefur nánari upplýsingar og er alltaf hægt að ná í hann í síma 897 8279.
E-mail: lifur@lysi.is