Omega-3 fiskiolía

Omega-3 fiskiolía er framleidd úr fiskitegundum sem eru auðugar af Omega-3 fitusýrum. Omega-3 frá LÝSI inniheldur ekki vítamín og má því taka með þorskalýsi og öðrum tegundum lýsis.

Áhrif Omega-3 fitusýra, einkum EPA og DHA, hafa verið rannsökuð ítarlega og niðurstöður rannsóknanna birst í vísindaritum víða um heim. Jafnframt er oft fjallað um jákvæða eiginleika þeirra í fjölmiðlum.

Omega-3 fitusýrur hafa góð áhrif á hjarta- og æðakerfi auk þess að gegna mikilvægu hlutverki við uppbyggingu heila og miðtaugakerfs.

Frekari upplýsingar: consumer@lysi.is

Næringarupplýsingar

Ráðlagður daglegur neysluskammtur

1 teskeið (5 ml)

Innihald:
Omega-3 fiskiolía, sítrónubragðefni, þráavarnarefni (náttúruleg tókóferól).

Næringargildi

per 5 ml
Orka 170 kJ / 41 kcal
Próteín 0 g
Kolvetni 0 g
Fita 4,6 g
Mettuð fita 1,2 g
Einómettuð fita 1,2 g
Fjölómettuð fita 2,2 g
Þar af Omega-3 fitusýrur:
EPA 736 mg
DHA 460 mg