Hugur og geð

Rannsóknir á þunglyndi

15.01.2014

Í tíu ítarlegum rannsóknum kom í ljós að Omega-3 fjölómettaðar fitusýrur úr fiski drógu úr þunglyndi sjúklinga með geðraskanir.

Neysla Omega-3 fitusýra úr fiskolíum sýndu and-þunglyndis virkni í 10 ítarlegum og kerfisbundnum rannsóknum sem gerðar voru á 329 sjúklingum og stóðu í yfir einn mánuð hver. Niðurstöðurnar benda til þess að stórir skammtar af Omega-3 fitusýrum séu mun áhrifameiri en minni skammtar. Þrátt fyrir að niðurstöðurnar séu jákvæðar, þarf stærri og enn ítarlegri rannsóknir til afla betri upplýsinga um ástand sjúklinga, skammtastærðir og hlutfall ómega-3 fitusýra við meðhöndlun þunglyndis.

P-Y Lin og KP SU (2007) A meta-analytic review of double-blind, placebo-controlled trials of antidepressant efficacy of omega-3 fatty acids. Journal of Clinical Psychiatry, 68, 1056-61.

Til baka